Flýtilyklar
Skordýravarnir
Skordýrabaninn 400ml
Til notkunar innandyra á ófleyg skordýr svo sem kakkalakka, maura, veggjalýs, flær og silfurskottur.
Notkunarleiðbeiningar:
Beina ætti úðanum að felustöðum (sprungum í veggjum, gólfum ofr) sem og að farleiðum skordýranna (umhverfis ruslaílát, handlaugar og aðra vaska, baðker, þvottaaðstöðu ofr), þannig að svæðið sem úðað er á verði blautt. Halda skal úðabrúsanum í lóðréttri stöðu á meðan úðað er, um 30cm frá yfirborðinu sem úðað er á. Árangur næst skömmu eftir að skordýrin komast í snertingu við eitrið. Eitrið virkar á skordýrin í margar vikur. Endurtakið úðunina ef yfirborðið er þvegið. Til að drepa nýklakin skordýr skal endurtaka úðun að sex viknum liðnum. Ekki hentar að nota þessa vöru með því að úða út í loftið gegn fleygum skordýrum (flugum, mýflugum).
Aðvörun
Gætið þess að úðinn komist ekki í snertingu við matvæli, ílát undir matvæli, leikföng eða gæludýr. Fjarlægið fugla og hyljið fiskabúr áður en úðað er. Forðist snertingu við augu, munn og húð. Hreinsa skal efnið af húð með vænum skammti af sápuvatni. Haldið börnum í hæfilegri fjarlægð meðan úðað er.
Geymsla
Geymist í upprunalegum, óopnuðum umbúðum á þurrum og svölum stað, fjarri hitagjöfum og sólarljósi. Má ekki frjósa.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.