Flýtilyklar
Skordýravarnir
Vernda skordýravörn 100ml
Hentar til að halda burt skordýrum og áttfætlum sem nærast á blóði, svosem lúsmýi, bitmýi, flóm, maurum, moskítóflugum og blóðmítli. Má notast hvorutveggja á húð og fatnað.
Inniheldur náttúrulegt, virkt efni, ilmviðarolíukraft sem fælir frá skordýr og áttfætlur. Viðbætt biturefni (denatóníum benzóat) eykur öryggið.
Notkunarleiðbeiningar
Haldið brúsanum í lóðréttri stöðu, úðið á húðina til verndar og dreifið jafnt úr efninu. Fyrir andlitshúð skal úða á hendur og bera á andlitið, nema í kring um augu og munn. Til að auka fælingarmáttinn má einnig úða á fatnað (sérstaklega kraga, ermar, sokka, skálmar). Samt sem áður er mælt með að prófa efnið fyrst á minna sýnilegum hluta flíkurinnar áður en það er notað. Þegar efnið er notað á börn skaltu fyrst úða á eigin hendur og dreifa því þannig á húð barna. Notist ekki á hendur barna. Hjá smábörnum skal nota efnið af varúð og helst á fatnað.
Efnið ætti að halda bitmýi og moskítóflugum frá í um sex tíma, eftir því hve þykkt lag er borið á húðina. Þegar það er notað gegn blóðmítli er mælt með endurtekinni úðun eftir 2 - 3 tíma.
Notið vörnina ekki á börn undir þriggja mánaða aldri. Takmarkið notkun á börn á aldrinum 3 - 6 mánaða við fatnað. Notið ekki innandyra. Þegar komið er inn skal þvo húðina vandlega með sápuvatni. Þvoið fatnað sem úðað hefur verið á, áður en hann er notaður aftur. Forðist snertingu við augu og munn. Berið ekki á sólbrunna húð. Ef efnið er innbyrt skal tafarlaust leita ráða læknis og sýna umbúðirnar ásamt merkimiðanum. Haldið fjarri matvælum og geymið þar sem börn ná ekki til.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.