
Hænsnafóðrari 7,5kg SmartCoop
Hænsnafóðrari 7,5kg SmartCoop
Vörunúmer
AK70660
SmartCoop fóðrarinn tryggir það að hænurnar hafi stöðugan aðgang að hreinu fóðri og skerðir aðgang nagdýra og spörfugla að hænsnafóðrinu.
Þegar hænan stígur á þrepið opnast fóðurhólfið og helst opið þangað til fuglinn sleppir þrepinu.
Auðvelt er fyrir jafnvel litla alifugla að stíga á þrepið þökk sé fjaðurkerfi í lokinu en meindýr eins og mýs, rottur og spörfuglar eiga mjög erfitt með að komast í fóðrið.
- Hægt er að festa lúguna opna á meðan fuglinn venst fóðraranum
- Hægt er að stilla hversu mikið fóður kemur niður í áthólfin
- Engin verkfæri þarf til að fylla á fóðrarann eða þrífa hann
- Festingar til að hengja fóðrarann upp á vegg fylgja með
- Gerður úr sterku, höggvörðu og endingargóðu plasti
- Tekur 7,5kg af fóðri
- L x B x H = 36 x 27 x 34cm
- Stækkun um önnur 7,5kg fáanleg á vörunúmeri AK70661
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.