Flýtilyklar
Brynning fjósið
Skurðdæla Aquamat II
Vatnsdæla fyrir beitarhólf sem búfé lærir fljótt að knýja og nota.
Skurðdælur er hægt að nota þegar dýr komast ekki ofaní skurði til að drekka eða þegar skurður, lækur eða vatn er utan girðingar. Þessar pumpur dæla allt að 7 metra upp og 70 metra lengd og eru sjálfvirkar, ss þurfa ekki rafmagn því að dýrið pumpar sjálft. Hentar vel fyrir hesta og nautgripi. Annar 10-15 dýrum.
Skál dælunnar hallar afturábak, frá dýrinu. Þegar dælan er fyrst sett upp skal pumpa vatni upp í skálina. Til að ná í vatnið aftast í skálinni þarf dýrið að ýta pumpunni afturábak. Við þetta er dýrið að pumpa næsta skammti upp í skálina. Einnig er tryggt að þegar dýrið hættir að drekka er vatn í skálinni til að hvetja næsta dýr til að ýta á pumpuna. Dýrin eru fljót að læra á dæluna þar sem að hvatinn til að ýta á pumpuna er til staðar.
Slangan má liggja lárétt eða lóðrétt ofan í skurði/vatni til að sjúga upp í dæluna. Slangan þarf að vera 1" breið og fylgir ekki með í kaupunum. Mikilvægt er að ganga þannig frá endanum að hann bæði liggi örugglega ofan í vatninu og eins að gróður og botnset stífli ekki slönguna. Hægt er að taka dæluna í sundur og þrífa set úr ventlinum ef þörf er á.
Dælan þarf hvorki sólarljós, rafmagn né vatnsafl til að dæla. Dýrið pumpar vatninu sjálft.
Aukahlutir seldir sér:
Einstreymisloki: AK22422
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.