Flýtilyklar
Books
Rúna - örlagasaga
Örlagasaga Rúnu Einarsdóttur
Engin íslensk kona hefur unnið jafn glæsta sigra á hestbaki heima og erlendis og Rúna
Einarsdóttir – og hún kynnti Orra frá Þúfu til sögunnar, frægasta kynbótahest Íslands. Rúna
lifði í vellystingum á glæsilegum hestabúgarði í Þýskalandi og engin lát virtust vera á
velgengninni. En hér segir ekki einungis frá sigrum Rúnu heldur líka konunni á bak við
glansmyndina, einsemd hennar og sorgum, konunni sem á tímabili fannst eins og öll sund
væru lokuð.
Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar af alkunnu innsæi og snilld örlagasögu stúlkunnar sem
ólst upp í fásinni og náttúrufegurð í Svínadal í Húnavatnssýslu, konunnar sem náði hæstu
hæðum glæsilífs – en líka dýpstu dölum tilverunnar.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.