Flýtilyklar
Hófar & hárafar
PAVO LinseedOil Hörfræolía 1 ltr
PAVO Linseed Oil er kaldpressuð hörfræolía. Bætir húð og hárafar og hefur bólgueyðandi virkni. Kjörin viðbót við daglegt fóður.
Líflaus feldur eða tregða við feldskipti getur verið merki um skort á Omega 3 og er Omega 3 mikilvægur þáttur heilbrigðs felds. Hesturinn myndar ekki fitusýruna í eigin efnaskiptum og því þarf að leggja hana til með fóðrun. Pavo LinseedOil hörfræolía er rík af Omega 3 og Omega 6 og hjálpar hestinum þínum að glansa sem aldrei fyrr. Hentar öllum hestum sem þarfnast viðbótar stuðnings við feldinn. Eftir tveggja vikna kúr ætti árangurinn ekki að láta á sér standa.
Viðbótarvirkni Omega 3 fitusýra felst í bólgueyðandi eiginleikum sem styðja við ónæmiskerfi hesta þegar á reynir, og yfir vetrarmánuði.
Hörfræolían frá Pavo er kjörin sem viðbót við daglegt heildarfóður. Auk þess að koma meiri glans í feldinn eykur olían upptöku ýmissa vítamína á borð við A, D, E og K.
- Hörfræolía
- Heilbrigður og skínandi feldur
- Rík af Omega 3 og 6
- 100% náttúruleg (kaldpressuð)
- Skjótvirk
- Kemur í 1 líters brúsa með handhægum skammtara
Ráðlagður skammtur: 6-7 ml/100 kg lífþunga á dag, eða 20 ml fyrir 300 kg hest.
Innihald: 100% hörfræolía.
Greiningarþættir: Hráprótein 0%, hráfita 99,8%, hrátréni 0%, hráaska 0%, Omega-3 55%, Omega 6 15%.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.