Flýtilyklar
Mervue hestabætiefni
Mervue EliteFlex Forte 2 kg
EliteFlex Forte er fóðurbætiefni á duftformi, til viðhalds og stuðnings á heilbrigðu brjóski og liðum hesta.
EliteFlex Forte eykur seigju og smureiginleika liðvökva og dregur úr bólgusvari með náttúrulegum hætti.
Lykileiginleikar:
- Lífrænt glúkósamín eykur styrk glýkósamínóglýkana sem styðja við bandvef og liðvökva og smyrja og verja liði.
- Kondróítín súlfat dregur til sín vökva sem eykur þol liða fyrir álagi og höggum.
- MSM - náttúruleg uppspretta brennisteins sem styrkir sinar og liðbönd, sem er mikilvægt fyrir stöðugleika liðamóta.
- Omega-3 dregur úr bólgusvari og stuðlar að endurnýjun liðvefs.
- Sink á lífrænu formi, en sink er forstigsefni fyrir keratín, eitt af byggingarefnum bandvefs, sem styður stöðugleika liða.
Fóðrunarleiðbeiningar (m.v. 350 kg hest):
Bæta skal EliteFlex Forte við hefðbundinn fóðurskammt.
Gefið 30g á dag í 60-120 daga.
Ein kúfuð skeið er 50g.
Greiningarþættir: Raki 22,5%, hráprótein 9,3%, hráaska 42%, hráolía 24,1%, hrátrefjar 0%, natríum 0%, kalsíum 0% fosfór 0%
Samsetning: Glúkósamínhýdróklóríð, kondróitínsúlfat, meþýlsúlfónýlmetan (MSM).
Aukefni í 1 kg:
Vítamín: E-vítamín (3a700 a-tókóferól) 20.000mg.
Snefilefni: Sink (3b607 klósamband sinks af glýsínhýdrati) 3.000 mg.
Efnafræðilega vel skilgreind efni með áþekka verkun og vítamín: Omega 3 100.000mg.
Amínósýrur: Lýsín (3c322) 55.000 mg.
BIÐTÍMI EFTIR GJÖF: 24 tímar fyrir keppni
Magn: 2 kg í fötu.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.