Flýtilyklar
Mervue hestabætiefni
Mervue Racing E 3 kg
Racing E er fóðurbætiefni á duftformi, með vítamínum og öðrum næringarefnum sem styðja við vöðvavirkni.
Auðugt af náttúrulegu E-vítamíni sem styður við frumuveggi, ver frumur fyrir niðurbroti af völdum frjálsra stakeinda, og er miklvægt vöðvafrumum og ónæmisvirkni. Leggur til lífsnauðsynleg næringarefni fyrir vöðvavirkni, vöðvavöxt og þroska.
Lykileiginleikar:
- Leggur til andoxunarefni við streituvaldandi aðstæður.
- Veitir andoxunarstuðning með skilvirkum hætti, sem er miklvægt hestum sem fá eingöngu verkað fóður eða olíu út á fóðrið.
- Bætir frammistöðu, þol og dregur úr vöðvaþreytu.
- Hentar öllum hestum í þjálfun.
Fóðrunarleiðbeiningar (m.v. 350 kg hest):
Dagleg gjöf:
Hestur í þjálfun eða keppni 30g (1 kúfuð skeið er 50g)
Ræktunarhross 30g
Athugið: Hesturinn skal ávallt hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni.
Greiningarþættir: Hráolía 5%, hráprótein 8%, raki 2%, hrátrefjar 0,1%, hráaska 4%, lýsín 6%, meþíónín 2%, natríum 0%, heildarsykrur 80%.
Samsetning: Glúkósi
Aukefni í 1 kg:
Vítamín: B1-vítamín (3a821 þíamín) 2.500mg, E-vítamín (3a700 a-tókóferól) 60.000mg, C-vítamín (3a300) 1.000mg.
Amínósýrur: Lýsín (3.2.3) 60.000mg, DL-meþíónín (3c301) 20.000mg.
Snefilefni: Selen (3b802 natríumselenít) 20mg.
Varan er ekki lyf og ekki leyfisskyld sem slík.
Magn: 3 kg í fötu.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.