Flýtilyklar
Vítamín & steinefni
Mervue Liverpak 100 1 lítri
LiverPak 100 er fóðurbætiefni á fljótandi formi sem styður við lifrarstarfsemi og efnaskipti hesta.
LiverPak 100 er fóðurbætiefni á fljótandi formi sem styður við lifrarstarfsemi og efnaskipti hesta.
LiverPak 100 er blanda næringarefna sem styðja við:
- Lifrarstarfsemi hesta í þjálfun.
- Hesta sem fá stóra kjarnfóðurskammta.
- Hesta sem ekki nærast.
- Hesta sem mælast með há gildi þríglýseríða eða lifrarensíma.
- Hesta sem eru á lyfjagjöf eða eftir aðgerð.
- Merar, einkum eldri og þyngri mera fyrir og eftir köstun.
- Hesta sem glíma við eitrun, m.a. af völdum sveppaeiturs úr fóðri (mycotoxin) eða ofnæmi.
Lykileiginleikar:
- Styður lifrarvef og endurnýjun hans við krefjandi aðstæður.
- Hjálpar til við að lækka lifrarensím og þríglýseríð.
- Hefur andoxandi virkni sem styður og ver lifrina fyrir álagi.
- Styður við lyfja- og eiturefnaskipti lifrar.
- Bætir insúlínnæmni (t.d. hesta sem hættir við hófsperru, eldri og feitari hesta)
Lifrin er efnaskiptunum afar mikilvæg
- seytir galli
- efnaskipti kolvetna
- efnaskipti fitu
- efnaskipti lyfja
Fóðrunarleiðbeiningar (m.v. 350 kg hest):
Gefið 40ml daglega.
Athugið: Hesturinn þarf ávallt að hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni
Greiningarþættir: Raki 72,8%, hráolía 1%, hráprótein 1%, hráaska 1%, hrátrefjar 1%, natríum 0%
Samsetning: Maríuþistill, rósmarín, própýlenglýkól.
Aukefni í 1 líter: Amínósýrur: hýdroxýl hliðstæða við meþíónín (3c307) 50.000mg
Vítamín og forvítamín: nikótínamíð (3a315) 8.000mg, B1-vítamín (3a821) 5.000mg, B2-vítamín – ríbóflavín 2.000mg, B6-vítamín (3a831) 1.000mg, bíótín (3a880) 750mg, E-vítamín (3a700 a-tókóferól) 10.000mg, C-vítamín (3a300) 1.000mg, K3-vítamín (3a710) 2.000mg. Efnafræðilega vel skilgreind efni með áþekka verkun og vítamín: L-karnitín (3a910) 15.000mg.
Varan er ekki lyf og ekki skráningarskyld sem slík.
Magn: 1 lítri í brúsa.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.