
Hjólbörur Chuko m/sturtu 180L
Hjólbörur Chuko m/sturtu 180L
Vörunúmer
HK145789-2
Afar handhægar hjólbörur með tveimur dekkjum. Hægt að losa skúffuna og sturta úr þeim eða leggja skúffuna niður og sópa eða moka upp í hana lárétta.
Með Chuko hjólbörunum er auðveldara að fylla þær, keyra með hlass og tæma úr þeim. Auðvelt er að lækka skúffuna niður að jörðu og því sérlega gott að setja þung hlöss í börurnar með því að raka, skófla eða draga hluti í skúffuna. Með ástigsjárninu er auðvelt að koma börunum aftur í upprétta stöðu.
Þar sem að dekkin eru staðsett akkúrat undir hlassinu er sérlega þægilegt að keyra börurnar fullar. Þetta þýðir að ekki þarf að lyfta börunum mikið til að keyra þær, þar sem jafnvægispunkturinn er réttur. Eins er mjög auðvelt að losa börurnar þar sem að hægt er að renna kjálkanum afturábak. Notið eigin líkamsþyngd til að losa börurnar með lítilli fyrirhöfn, jafnvel þegar flutt eru þung hlöss. Hjólbörur sem auðvelda þér vinnuna.
- Afar sterkur kjálki
- Plastskúffan er varin fyrir útfjólubláum geislum (UV-resistant)
- Fjögurra laga slöngulaus dekk með rúllulegum
- Hönnun með einkaleyfi
- Stærð skúffu: 180 lítrar
Stærð (lengd x breidd x hæð): 188 cm x 83 cm x 74 cm
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.