Flýtilyklar
Rúgur
Vetrarrúgur GRANAT
Yrkið heitir fullu nafni Dankowskie Granat. Hefur gefið afar góða raun við finnskar aðstæður og reynist þar bæði sjúkdómaþolið og stendur vel af sér vetur.
Yrkið heitir fullu nafni Dankowskie Granat. Hefur gefið afar góða raun við finnskar aðstæður og reynist þar bæði sjúkdómaþolið og stendur vel af sér vetur. Uppskerumikið í Finnlandi og hættir minna til legu en mörg önnur yrki. Hægt að nýta í snemmsprottna vorbeit vori eftir sáningu og svo til kornþroska að hausti. Rúgur þolir súrari jörð en t.d. bygg.
Vetrarrúgur er tvíær og hefur verið ræktaður til þroska hér með nokkrum árangri en er oftast sáð til vorbeitar. Rúgur er mun vetrarþolnari en t.d. hveiti. Rúgi er sáð í lok júlí - byrjun ágúst og heldur hann græna litnum yfir veturinn og tekur því við sér um leið og hlýnar að vori. Hann er því kominn í fulla sprettu á undan öðrum túngróðri. Einnig má sá honum að vori og beita eða slá sama ár án þess að hann skríði og heldur hann fóðrunarvirði langt fram á haust.
Ráðlagt sáðmagn 180-200 kg/ha.
Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun en pantanir og fyrirspurnir berist til söludeildar í s. 540-1100 eða sadvara@lifland.is
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.