Flýtilyklar
Smárar
Bakteríusmit fyrir smára 105 gr
Einn poki dugir til smitunar á 10 kg af smárafræi.
Smárar geta bundið köfnunarefni úr andrúmslofti með hjálp bakteríu af stofninum Rhizobium. Með bakteríusmiti er hægt að minnka þörfina á áburðargjöf töluvert.
Einn poki af bakteríusmiti dugir til smitunar á 10 kg af smárafræi.
Pokinn inniheldur einn milljarð baktería á hvert gramm, geymist á köldum stað og skal pokinn ekki opnaður fyrr en við notkun.
Leiðbeiningar um smitun smárafræs:
Þegar sá á fræinu, skal blanda innihaldi pokans í um 1 lítra af mjólk/vatni á poka. Eftir að hrært er, er vökvanum sem inniheldur bakteríurnar dreift yfir fræið og blandað vel saman þannig að hvert fræ verði rakt, t.d. í vel hreinsaðri steypuhrærivél eða múrbala. Smitun skal framkvæmd stuttu fyrir sáningu, og ber að forðast að fræið hitni eða verði fyrir beinu sólarljósi þar sem bakteríurnar deyja auðveldlega ef þornar.
Í fræblöndum er best að smita smárafræið fyrst og blanda síðan við annað fræ. Æskilegt er að sá smituðu fræi strax, helst í skýjuðu veðri og valta strax á eftir.
Geyma skal smitað fræ í kæli verði einhver bið á dreifingu. Smitið þarf einnig að geymast í kæli og skal forða því frá sólarljósi.
Þessi vara er ekki til sölu í vefverslun en pantanir og fyrirspurnir berist til söludeildar í s. 540-1100 eða sadvara@lifland.is
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.