Flýtilyklar
Melting & góðgerlar
Protexin Gut Bind 30ml
Protexin Gut Bind inniheldur góðgerla, góðgerlabætandi efni, kaólín og pektín ætlað til stuðnings þörmum hesta og folalda í tveggja daga kúr. Kaólín er náttúrulegt bindiefni sem hjálpar til við að gera hægðir þéttari og pektín mildar særindi í magaslímhimnum.
Gut Bind þykknið leggur til mikilvægar fitusýrur og Saccharomyces cerevisiae góðgerlarnir styðja ekki aðeins við örflóru magans þegar á reynir, heldur leggja einnig til lífnauðsynlegar amínósýrur, vítamín á borð við B6-vítamín og mikilvæg steinefni á borð við járn og magnesíum. S. cerevisiae styður við meltingu trefja og eykur þar með aðgengilega, góða orku úr fóðrinu.
Gut Bind er með piparmyntubragði.
Notkun:
- Gefið um munn á 8 tíma fresti eins lengi og nauðsyn krefur eða eins og dýralæknir ráðleggur.
- Hestur undir 100 kg: 5 ml á 8 tíma fresti.
- Hestur 100-500 kg: 10 ml á 8 tíma fresti.
Leitið ávallt ráðlegginga dýralæknis ef hestur eða folald er með meltingartruflanir.
-
Blue Hors Gastrolar
Verð12.890 kr. -
Protexin Quick Fix
Verð1.890 kr. -
Mervue Gastrofen 80 ml túpa
Verð1.890 kr. -
Mervue ProBio Plus 1 kg
Verð7.990 kr.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.