Flýtilyklar
Vökvabúskapur, sölt & rafvakar (elektrólýtar)
Mervue RecoBoost 80 ml
RecoBoost er steinefnafóður á þykknisformi, fyrir hesta.
RecoBoost leggur til nauðsynleg næringarefni sem tapast við áreynslu í æfingum og keppni. Samsett úr auðuppteknum rafvökum (elektrólýtum), greinóttum amínósýrum (BCAA), andoxunarefnum og B-vítamínum til að styðja við heilbrigði, frammistöðu og endurheimt.
Lykileiginleikar:
- Bætt orkuefnaskipti með orkustuðningi við vöðvavef meðan á erfiðum æfingum stendur.
- Endurvötnun með auðuppteknum rafvökum (elektrólýtum).
- Styttir endurheimtartíma, dregur úr vöðvaniðurbroti, þreytu og stífni eftir æfingar og keppni.
- Kalíum sem dregur úr vöðvakrömpum.
Fóðrunarleiðbeiningar:
Keppni, sýningar og erfiðisvinna: Gefið 1 fulla sprautu 4 – 8 klst fyrir viðburð, eftir veðri og lengd áreynslu. Gefið ½ til 1 fulla sprautu í munn eftir viðburð.
Hestar í flutningi:
Gefið 1 sprautu á dag 4 – 12 dögum fyrir flutning.
Þolreið/hestaferðir:
Gefið 1 sprautu 4 – 8 tímum fyrir keppni/brottför. Gefið ½ túpu (40ml) eftir hvern legg.
Þjálfun:
Gefið ½ túpu eftir hverja æfingu.
Athugið að hesturinn þarf ávallt að hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni.
Greiningarþættir: Natríum 8,9%, kalíum 5%, magnesíum <0,5%, kalsíum 1%.
Samsetning: Natríumklóríð, kalíumklóríð, kalsíumklóríð, magnesíumsúlfat.
Aukefni í 80ml:
Vítamín: E-vítamín (3a700 a-tókóferól) 1.000mg, askorbínsýra (3a300) 280mg, ríbóflavín (3a825i) 300mg, þíamín hýdróklóríð (3a821) 1.500mg, pýridoxín hýdróklóríð (3a831) 150mg, kalsíum-D-pantóþenat (3a841) 150mg, níkótínamíð (3a315) 760mg, fólínsýra (3a316) 250mg.
Amínósýrur: L-valín (3c370) 2.740mg, L-ísólevsín (3c8.8.1) 2.250mg, L-levsín (3c382) 5.500mg
Magn: 80 ml í túpu.
-
Blue Hors Electrolyte Re-Cover
Verð3.690 kr. -
Mervue Start Aid Electrolyte 2 kg
Verð6.990 kr. -
Foran Refuel Gel 30 ml
Verð2.790 kr.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.