Flýtilyklar
Melting & góðgerlar
Protexin Fifteen Plus 900 gr
Fifteen Plus er breiðvirkt fóðurbætiefni fyrir eldri hesta, sem styður við heilbrigði meltingarvegar, ónæmiskerfis og liða.
Fifteen Plus hentar öllum eldri hestum hvort sem þeir eru enn í virkni, reglubundinni þjálfun og vinnu eða bara í rólegheitum að njóta efri áranna.
Fifteen Plus inniheldur hörfræ sem leggur til mikilvæga innihaldsþætti: Omega 3 og Omega 6 fitusýrur og andoxunarefni.
Góðgerillinn Saccharomyces cerevisiae inniheldur fjölmargar lífsnauðsynlegar amínósýrur, vítamín (þar á meðal B6) auk mikilvægra steinefna. S. cerevisiae bætir meltingu trefja, sem eykur nýtingu og framboð orku úr fóðri, sem tryggir að hesturinn nærist betur.
Fifteen Plus inniheldur vítamín-komplex, auðugan af andoxunarefnum og bíótíni (B7-vítamín) sem styður við heilbrigði hófa.
Lykilinnihaldsþættir:
- C- og E-vítamín - andoxandi vítamín sem hlutleysa frjálsar stakeindir
- Bíótín (B7-vítamín) - styður við heilbrigði hófa
- Hörfræ - auðugt af Omega 3 og Omega 6 fitusýrum
- Betaglúkanar og hvítlaukur - til að styðja við ónæmiskerfið
- Kúrkúmín - virki innihaldsþátturinn í túrmeriki
- Protexin góðgerlar - til stuðnings hagstæðri þarmaflóru
- Preplex góðgerlabætir - næring fyrir góðgerla og hagstæða þarmaflóru
- Glúkósamín - stuðningur við liði
Notkunarleiðbeiningar:
Út á daglegt fóður
< 300kg hestur
15g (1 sléttfull mæliskeið)
300 - 600kg hestur
30g (2 sléttfullar mæliskeiðar)
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.