Flýtilyklar
RuffWear
Ruffwear Flagline beisli
Ruffwear Flagline beislið er frábært fyrir hunda sem fara með eigendum sínum í fjallgöngur og eins fyrir hunda sem með stoðkerfisvandamál og þurfa aðstoð við að fara td upp og niður stiga. Hentar líka sérlega vel fyrir hunda sem ná að snúa sig úr hefðbundnum beislum.
Flagline beislið er létt og níðsterkt, þægilegt beisli með handfangi sem gott er að grípa í til að lyfta hundinum yfir hindranir, upp misjöfnur eða til að hjálpa hundum sem eiga erfitt með gang eða hreyfingar. Handfangið, brjóstplatan og gott jafnvægi beislisins gera það að frábærum búnaði í hvers kyns útivist.
Beislið er mikið stillanlegt og auðvelt er að taka það af og setja það á hundinn. Flagline eykur öryggi og öryggiskennd hundsins og eykur möguleika hundsins til að fylgja eiganda sínum í útivist.
-
Efni
- 420 denier níðsterkt nælon
- 75 denier pólýester fóður
- Nælon ólar
- ITW Nexus Mach smellur
- Rafhúðaður 6061-T6 V-hringur úr áli
-
Umhirða
- Þvoið í höndum
- Notið milt þvottaefni
- Þurrkið við stofuhita
Stærðir: Mælið ummál breiðasta hluta brjóstkassa.
S = 56 - 69cm
M = 69 - 81cm
L/XL = 81 - 107cm
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.